Monday, January 30, 2006

Myndlista tímar, gæpamenn og fitabollur

Já ég er sem betur fer í myndlista tímum. Þeir eru fyrir sinn part skemmtilegir. Það er bara ein stelpa sem er held ég eitthvað wierd.. eða eitthvað ofvirk. í seinasta tíma söng hún hástöfum I will always love you yfir uppáhalds Devendra Banhart lagið mitt. Án gríns hún söng sko eins og hún væri á sviði. Og þá meina ég ekki vel heldur bara hátt. Og sona eins og hún væri virkilega að reyna að syngja vel. Með smá sona kúka-kreistu í röddinni. Nú er ég ekki kona sem vill ekki að fólk fái að tjá sig og syngja ef það er þeirra tjáning. En þegar önnur mútzík er í gaaangi, hef ég takmarkaða þolinmæði. Þessi gella er samt heví weird hún lítur út eins og örlítið overwaight michelle Rodriguez í pastel litum. Hún kemur rosa nálægt fólki þegar hún talar við það og er hlaupandi útum allt allann tímann að skoða hjá öllum hinum. Allt saman gott og blessað. en jæja í dag hélt hún áfram að syngja....og getiði hvaða lag?... I will always love you? JÁ! þokkalega á sama styrkleika. Ég er samt farinn að velta fyrir mér hvort ég hafi einhverja súper krafta því ég var eitthvað að pirrast á þessari stúlku (eins og mér er einni lagið) þegar skápa hurðin sem hún var að opna hrinur niður. (hún slasaðist ekki) en hætti að syngja. Já aumingja skinnið. Annars var ég bara að læra um kobba kviðristu morðin í forensic psyc í dag. Kennarinn minn var ofsa spenntur yfir þessu öllu saman. jú og ég lærði líka um einhvern kreisí gæja sem drap 8 hjúkrunarfræðinema fyrir 40 árum Richard Speck ef einhver hefur áhuga. Hann varð víst kynskiptingur á kóki í fangelsinu sem hann dó í. með 10 kærasta. áhugavert allt saman. en jæja þá er best að fara kynna sér sálfræði kynhegðunnar okkar allra. og svona aðeins að lokum þá er fólk á íslandi ekki feitt. Ég hef aldrei séð jafn feitt fólk heima og ég sé hérna. hóóólí mólí já konur sem kjaga og eru ekki lengur með ökkla eða háls. og huuugess belg fyrir maga, allann hringinn. Já allavega, ég er víst bara petite. haaaa!

3 comments:

Anonymous said...

vá hanna þú skalt æfa þessa súperkrafta,ég trúi því alveg að þetta er hægt,allt með hugarorkunni.svo þegar þú kemur heim geturu látið hús catch on fire and shit,you know it baby!hey beam yourself to me baby!!

Anonymous said...

kanski petite líkamlega,
en með stóra og góða sál... aaawwwww

Anonymous said...

Hanna mín, þetta er tileinkað þér frá hjrta rótum mínum : "AAnndd III willll alwaysss love yyyooouu"