Saturday, January 17, 2009

KALT KAALT KAAALLTT og gjebbó kommóða

Rosalega kalt hér, mig langar í svona ninjadæmi á andlitið á mér, það er líka svo badass útlítandi jæja kannski bara lúðó...en mér er svosem sama í 11 stiga frosti og roki. Keypti geðveikt flotta kommóðu í gær labbaði uppí Bushwick og keypti hana af einhverjum gæja sem er að fara til Kóreu, voða hipp og kúl gæji með krukku af hair pomade í hausnum á sér Preston eða eitthvað hét hann. En já kommóðan sem var frekar sjúsk er nú semsagt lökkuð og fín (sjá meðfylgjandi mynd). Ég og Kyle fórum í leiðangur að kaupa lakk niðrí bæ. tók okkur 3 tíma eða eitthvað lestirnar eru svo skemmtilegar. Það var annars einhver gæji í lestini að æfa sig að rappa þuldi þarna yfir öllum hátt og snjallt kemur þá ekki einhver krakkfýkill og er eitthvað að hlaupa fram og til baka í lestini að hlæja eins og smástelpa þá segir rapp-gæjin við hana Sit yo ass down woman nobody needs too see a display like that sober up and stay sober, þá varð kella voða skömmustuleg og fer eitthvað að segja við hann ég heyri ekki hvað nema bara hann vill ekkert tala við hana og sagði go away dont talk to me. Kellugreyið fór bara út, grey krakkfýklarnir sona er þetta víst bara.

Jæja skólin byrjar svo á þriðjudaginn, það er frí á mánudaginn vegna Martin Luther King smá gálgafrestur, ég sé fram á rosalega skemmtó þriðjudaga eða þannig..verð í skólanum frá 9 til 9 um kvöldið húrra.