Tuesday, October 13, 2009

Haust og Lauf og Grasker

Myndir af skrifstofuni sem ég vinn í í Ittleson og svo eitthvað af myndum sem Helga og þórir tóku:











Vinnan er alveg svakaleg hérna ég verð að segja það. Ég er með 7 drengi þar af 3 mjög challenging, uppá borðum og hlaupandi útúr stofuni brjálandist challenging. Svo á ég að stjórna stelpuhóp með öðrum sálfræðingi hérna sem byrjar 26 kannski seinna því Halloween er 31 og krakkarnir er alltaf snar tjúll þegar sú hátíð kemur svo kannski verður hópavinnu seinkað. Ég allavega alltaf bara búin á því þegar ég kem heim, get varla haldið augunum opnum til að lesa námsefnið yfir. AAAHHHhhh mikið er gott að væla smá, búin! þetta er samt lærdómsríkt og rosalega er fallegt þarna þetta eru bara svona sveitakot með frönskum gluggum og múrsteins strompum og skeljaþökum, risastór tré og runnar ég ætla taka myndir seinna. skólinn er líka ágætur ég hef svosem undan engu að kvarta. Sambýlingurinn sem ég hef ákveðið að kalla Sverri því mér finnst hann svo sverrislegur er eeld hress alltaf. Á kvennaveiðum og fyllerí kaupandi sér flatskjái og fínerí. Hann er merkilegur karakter segir manni sömu hlutina allavega 6 sinnum...aahh yeahhh these pants from Target really are big ...I really lost some waight ...oouuh gots to get some new pants I´m the incredible shrinking man osfr osfr...talar sumsé bara um það hvað hann hefur grennst mikið og og hvað hann er góður með tölvur og hvað hann er góður kokkur. Svo er mamma hans í krukku uppí eldhússkáp hann hefur ekki efni á að fara með öskuna til Hawai eins og hún vildi. Svo er hann að deita 2 eða 3 píur í einu og er alveg að kúka í sig yfir því. Hann var að segja mér og kyle frá og hann sagði I´m like a kid in a candy store i cant help myself...Dang oj hugsaði ég bara og held að vanþóknunar svipurinn hafi sést. 2 eru svartar einsteæðar mæður sem hann kynntist í Wholefoods og sú þriðja er einvher af bar eða eitthvað.
JIii nóg um Dan,

Helgs og Þórs farinn og það er leitt við söknum þeirra mikið sérstaklega Deniro eftirhermu Þóris. Ben og jerrys ísin búin og það er orðið kalt og dimmt hér. Haustið alveg offissíalt komið. Það er soldið fyndið hvað Haustið er mikil árstíð hérna í Ameríku það er alveg pumpkin lattes og muffins og lauf hengd útum allt og halloween skreytingar í mánuð og ég veit ekki hvað og hvað. Heima er haustið bara sona vika og svo er komin vetur og 20 tíma myrkur. Við hengjum ekki upp laufakransa og kaupum okkur graskerslatte ..reyndar held ég að ég hafi ekki einusinni séð grasker heima yfirleitt.
Ég verð að segja að ég er alhlynt svona árstíða upphafningu gaman bara segji ég..upp með laufkransana og graskerin húrraaaa það er komið haust!

oki nú er ég að fara að sofa
eitt að lokum ÉG ER BÚIN AÐ KAUPA MIÐANN MINN HEIM HÚRRA HÚRRA HÚRRAA JÓLIN HÉR KEM ÉG.
ps kyle er að fara til Ítalíu að heimsækja fjölskylduna sína svo ekkert ísland fyrir hann.

auka PS er
að ég kem heim að morgni 17 des og fer 7 jan

4 comments:

Anonymous said...

Það er gott að haustið leggst vel í þig Hanna mín. Ég væri líka til í að hafa meiri hauststemningu hérna á íslandi það er svo kósý tími :). Hlakka til að sjá þig um jólin en hafðu það sem allra best þangað til og ég bið að heilsa ykkur.

kossar og knús Elín

Anonymous said...

Bara að tékka inn. Alltaf gaman að lesa póstana þína, fá svona smá hönnuskot í æð :)
Hlakka til að hitta þig um jólin,
kv. Eva

Sigrún í Sviss said...

Va en voða fínt í vinnunni, fallegt umhverfi. Gaman að hafa einhver í heimsókn, ég væri til í að hafa einhvern alltaf í heimsókn:)

Hanna panna said...

'eg hlakka til að sja ykkur allar um jólin, vonandi hafa kári og freyja það rosa gott og Eva..ég hlakka til að sjá þig í miklum jólafýling kona!