Monday, May 30, 2011

Sumarfullswing

Sumarið er komið og kuldinn farinn sést ekki meir þar til í október geri ég ráð fyrir. Þar sem ég sit og skrifa þessi orð er hitinn 32 gráður og sól. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki beinlínis uppá mitt besta í svona hita og verð frekar fýld þegar þetta gerist. Annars er ég búin að gerast proactive með að kaupa gasalega fína loftkælingu af fínustu sort stafræn og fjarstýrð og allt. Það mun mikil gleði ríkja hér þegar hún kemur. Við brunnum nefnilega í garðinum í gær þrátt fyrir mikinn sólaráburð. Ristarnar á Kyle eru eins og jarðaber á litinn hann hélt nefnilega að hann myndi ekkert brenna því hann er svo vanur sólini að eigin sögn. Það var fyrir mikla mildi að ég fékk að bera þau svæði sem sólin sér, (andlitið,hálsin á honum, og framhandleggirnir)... en ristarnar gleymdust og því eru þær sem áður sagði skærrauðar.

Atvinnuleitin heldur áfram og ég er komin með viðtal á leikskóla í Brooklyn. Þetta er frammúrskarandi leikskóli með jóga, tónlistar, leiklistar og myndlistartíma. Það eru 5 nemendur á kennara og hver nemandi borgar 461$ fyrir fulla viku, þið megið reikna hvað leikskólinn græðir þá per krakkahóp.Ég er að vona að launin séu þá í samræmi við það sem þau eru að rukka foreldrana þ.e.a.s. ef ég fæ þá vinnuna. Þetta er náttúrulega ekki art therapy en það er svosem aldrei að vita hvað ég fæ að gera ef ég er ráðin. Ég sótti líka um í einhverri uuber fínni fatabúð sem selur Comme des carcon og fleiri fín merki. Ég veit ekki hvað ég var að pæla að sækja um þarna. Kyle sagði að einvher Cruella deVille myndi bara láta mig grenja. Sennilega er það satt og ef einhver er að fara að græta mig þá vil ég frekar að það séu tilfinningalega trufluð börn frekar en Cruella deVille. Hér: http://shopbird.com/home.php?cat=518
er hægt að skoða starfsmanna úrvalið. Sem dæmi á ég mér ekki uppáhalds Spring Collection og myndi ekki einusinni vita hvað ég ætti að segja,uuu..H&M I like them yes...
Allavega þá krossa ég bara fingur um að fá þessa vinnu því það væri ágætt að fá launaávísun um hver mánaðarmót.

4 comments:

Anonymous said...

sendu okkur smá hita frá þér þeir hljóta að ráð þig eins og skot kveðja amma

Anonymous said...

ohhh mig langar til ykkar aftur! Mig langar að vera nágranni ykkar!

jóní

Anonymous said...

Fullt af bloggi, ví.
Mér finnst þessi leikskóli mjög áhugaverður og mjög spennandi að prófa vinna þar, sjá samanburðinn við venjulegan leikskóla á Íslandi.
Og ef fatabúðin færðu afslátt og kaupir fullt fínt fyrir Sússu.
Sússa sviss

Hanna panna said...

Ég held ekki ég fái þessa búðarvinnu, þetta var allt mega tískufólk sem vann þarna, í Alexander mcqueen og stellu mcartney með marc jacobs töskur, ekki alveg mitt crowd :)