Friday, November 21, 2008

Kuldakast

Jæja þá er víst veturinn kominn. Ég hlakka afar mikið til að fá jólafríið. Kyle kominn með vinnu í vínbúð þar sem hann skutlast með sendingar allann daginn sem er víst ágætt því fólk tipsar alltaf hérna. Hann sagði mér að hann fór heim til einhvers kall sem kom til dyra á nærunum með púðluhund á hælum sér og spurði hvort kyle væri hræddur við hunda. Kyle hvaðst ekki vera hræddur við hunda og þá fór kallinn að hrópa KILL KILL á littlu púðluna og sprakk úr hlátri sjálfur. Gæjinn var svona 64 og átti þrítuga asíska konu huggulegur. Hér er annars þakkargjörðar hátíðin að ganga í garð. Þetta er mikil hátíð hér á bæ.. mér er nú svosem slétt sama en Tanya leigusali er búin að bjóða okkur í mat með Les og hennar gengi. Það þykir mér fallega gert af henni og kannski ef ég væri ekki svona feiminn lítil hjarta Íslendingur myndi ég þakka boðið en ég veit ekki með thanksgiving dinner með Les það er örugglega mikið partí hjá henni um þetta leiti. ( Les er fulli nágrannin okkar sem bauð kyle krakkana sína). Já annars er bara drullu kalt hérna og það er svosem fínt. Ég sakna úlpanna og stívélanna heima vetrar búningurinn varð hálfpartinn eftir heima. Annars er ég bara kát..þarf að klára ritgerðir það eru allir í skólanum að fara heim Gloria eina vinkona mín svo að segja er farinn til Chicago svo ég verð bara heima að skrifa og svona meðan Kyle greyið er í vinnuni með gömluköllunum og littla stráknum sem vinnur með honum.
jæja...ef einhvern langar að koma að hanga með mér í jólafríinu þá er það guðsvelkomið ég ætla gera einhverskonar plan um allt sem er ókeypis í New York ...ég mun ramba inná listaverka opnannir og svoleiss ef eitthvað verður ókeypis þá mæti ég...annars þyrfti ég að fara að safna svona afsláttar miðum...ég las einhversaðar að einvher kella í miðríkjunum keypti mat fyrir 10 dollara á viku fyrrir 12 manna fjölskyldu. Þetta verður maður að kynna sér. Jæja aftur 4 jæjja-ið. ég skelli nokkrum myndum af halloween og hverfinu okkar..ekkert mega spennandi enda ég ekki búin að vera gera neitt mega spennó hérna í þessari spennó borg...meh ræð bót á því seinna

Ps hundurinn á myndunum er hundurinn hennar tönju hann jackpott einn daginn var hann búinn að gelta fra´því um morguninn svo ég fór niður og kíkti á hann og greyið var lokaður inni af svona barna grindverki...allavega hætti hann ekki að gelta svo ég held að gæjinn uppi hafi fengið nóg og opnað bara fyrir honum. Þannig hann var bara ráfandi um gangana og mig langaði svo að hleypa honum inn en Kyle bannaði það.. það hefði víst litið illa út ef Tanja kæmi heim og við bara í góðu yfirlæti með hundinn uppi hjá okkur..en já allavega ..þannig er nú það.




















5 comments:

Jonina de la Rosa said...

geeeðveiktar myndir og vá ég er bara skotin í þessu graskeri !!

Anonymous said...

Vá hvað íbúðin ykkar er fín!
Arna

Laufey said...

ertu að djóka með kósý íbúð mar úffff

Unknown said...

já rosalega kósý!! Ég væri sko alveg til í að koma og hanga með þér á ókeypis sýningaropnunum og fleira í jólafríinu... ég mundi meirað segja hjálpa þér að klippa út afsláttarmiða!! ef ég bara ætti svoldið sem líklega allir íslendingar vildu að þeir ættu um þessar mundir...
En við erum hjá þér í huga og hjarta og þú í okkar :) Farið vel með ykkur og hafið það gott,
kv, María

Anonymous said...

Sæl Hanna mín, mikið er sætt heima hjá þér og Kyle. Fyrsta eldhúsborðið okkar var einmitt eins og ykkar. Og af því þú kemur svo seint heim úr skólanum skaltu nú kaupa þér piparúða og hafa hann í vasanum.

Ástarkveðjur

amma og afi